Eiríkur Logi Gunnarsson sigraði í karlaflokki E + NG á opna flæmska mótinu
Nokkrir leikmenn náðu verðlaunasætum á fyrstu dögunum á opna flæmska mótinu, sem fram fer í Ostende í Belgíu 10.-14. ágúst. Á fyrsta degi mótsins varð Eiríkur Logi Gunnarsson, KR í 3. sæti og Elvar Kjartansson, KR í 4. sæti í E-flokki karla. Ársól Clara Arnardóttir, KR varð í 3. sæti í flokki kvenna undir 21 árs. Guðrún Gestsdóttir varð í 5. sæti í flokki 40 ára og eldri. Eins og fram hefur komið í annarri frétt þá sigraði Agnes Brynjarsdóttir, Víkingi, í minikadett flokki og Berglind Anna Magnúsdóttir, KR, varð í 4. sæti.
Sunnudaginn 12. ágúst sigraði Eiríkur Logi Gunnarsson í flokki sem kallast E + NG. Elvar Kjartansson varð í 5.-8. í bæði E flokki og líka í flokki D4/D6. Pétur Gunnarsson varð í 5.-8. í C-flokki karla.
Forsíðumynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur og aðrar myndir af vef mótsins.
ÁMU