Kári Mímisson stendur sig vel í sænsku deildinni
Kári Mímisson, leikmaður úr KR, er við störf í Svíþjóð og leikur með liðinu Linné/Partille C1 í 3. deild VSSÖ. Liðið er efst í deildinni með 14 stig eftir 8 leiki. Kári er í 3. sæti yfir leikmenn deildarinnar, hefur unnið 13 leiki en tapað fimm.
Gunnar Snorri Ragnarsson, leikmaður KR, leikur einnig með liðinu. Hann hefur unnið 7 leiki en tapað 10.
ÁMU