Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 16.-17. mars
Íslandsmót í
flokkakeppni unglinga í borðtennis 2019 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla
helgina 16.-17. mars 2019.
Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.
Aldursflokkar
Keppt
verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um
flokkakeppni:
- Piltar
og telpur fædd 2006 og síðar (13 ára og yngri) - Sveinar og meyjarfædd 2004-2005 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2001-2003 (16-18
ára)
Dagskrá
Laugardagur 16. mars
13.00 Drengir fæddir 2001-2003
13.00 Sveinar fæddir 2004-2005
Sunnudagur 17. mars
10.00 Piltar fæddir 2006 og síðar
10.00 Telpur fæddar 2006 og síðar
13.00 Meyjar fæddar 2004-2005
13.00 Stúlkur fæddar 2001-2003
Keppnisfyrirkomulag
Hverju
félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það
óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv.
Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu
liði í einum flokki.
Keppt er
skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur,
og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga
þarf til að vinna leik.
Leikið
verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef
fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk. Raðað
verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv.
nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Verðlaun
verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.
Leikið
verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum.
Mælst er
til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Skráning og þátttökugjöld
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.600 á lið. Greiðsla leggist
inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur:
0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Greiðsla er staðfesting á þátttöku
og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir
upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal
koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Síðasti
skráningardagur er miðvikudagurinn 13. mars
kl. 20.00. Skráningum
skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=F7338A7F-E3B5-4D44-BCA0-A9F334936C6C) en þar skal koma fram í hvaða
flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa
liðin. Ef ekki gengur að skrá lið í gegnum Tournament Software má senda
tölvupóst til mótsstjórnar fyrir lok skráningarfrests.
Skila þarf kennitölu allra keppenda
í síðasta lagi á mótsdag!
Mótstjórn
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Guðrún Gestsdóttir, hs. 551 4949, [email protected]
Yfirdómari:
Nafn yfirdómara verður tilkynnt síðar.
Hlöðver
Steini Hlöðversson, gsm. 824 3738 , [email protected]
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 14. mars kl. 18:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.
Bréf um mótið:
ÁMU