Pepsi styrkleikamót Víkings verður haldið 12. október
Pepsi mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 12. október 2019.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með Stiga 3ja stjörnu kúlum.
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 12. okt : kl. 10:00 Eldri flokkur karla
„ kl. 10:30 1. flokkur karla
„ kl. 10:30 1. flokkur kvenna
“ kl. 12:30 2. flokkur karla
„ kl. 12:30 2. flokkur kvenna
“ kl. 14:00 Meistaraflokkur karla
„ kl. 14:00 Meistaraflokkur kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti, leyfilegt er að keppa í tveimur flokkum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000- í hvern flokk.
Yfirdómarar: Árni Siemsen
Pétur Ó. Stephensen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen
Jóhann Bjarnason
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 10. okt kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu
Skráningar: Pétur s-8940040/[email protected]. og sms skeyti.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 10 okt kl. 17:00.
Bréf um mótið: Pepsi mótið 12. okt 2019