Íslandsmót unglinga verður haldið 10.-11. mars
Íslandsmót unglinga í borðtennis 2012 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 10.-11. mars 2012 í umsjón Borðtennisdeildar KR.
Leikið verður í fimm aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og þremur aldursflokkum í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.
Sjá nánar í meðfylgjandi skjali: Íslandsmót unglinga 2012
ÁMU
Verðlaunahafar í tvenndarkeppni 15 ára og yngri á Íslandsmóti unglinga 2011. Mynd: Finnur Hrafn Jónsson