Uppfærðar reglur vegna COVID-19
Til samræmis við stórhertar sóttvarnaraðgerðir sem tóku gildi á miðnætti þann 25. mars hefur BTÍ uppfært reglur sínar vegna COVID-19.
Í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar segir „Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.“ Sjá nánar hér
Þessar aðgerðir kalla á stórhertar reglur í kring um æfingar á borðtennis sem eru aðeins leyfðar ef reglum þessum er fylgt í hvívetna. Til glöggvunar eru helstu breytingar frá fyrri reglum gulmerktar í skjalinu.
Uppfærðar reglur fá finna hér.
Nýjustu reglur vegna COVID-19 eru að auki alltaf aðgengilegar á forsíðu undir „NÝTT Á BORDTENNIS.IS“
Helstu breytingar frá fyrri reglum eru þessar:
- Hámarksfjöldi þátttakenda í hverju rými á æfingu eru 10 manns svo lengi sem hægt er að viðhafa 2 metra nálægðarviðmið og að enginn sameiginlegur búnaður sé notaður
- Aðeins einliðaleikur er heimill, ekki tvíliðaleikur eða tvenndarleikur.
- Allir þátttakendur þurfa að spritta sig fyrir og eftir æfingu.
- Kúlur skulu sótthreinsaðar fyrir og eftir æfingu.
- Í hvert skipti sem kúlur fara af borðinu þarf að skipta um kúlu eða sótthreinsa kúlu
- Leitast skal við að skipta sem minnst um æfingafélaga. Þegar það er gert þurfa þeir að sótthreinsa hendur sínar, borðið og kúlur.