Styrkleikalisti 1. desember birtur
Styrkleikalisti fyrir 1 desember 2021 (kallaður eftir viku 48) hefur verið birtur á vefnum, með fyrirvara um réttar skráningar. Við þessa uppfærslu hafa Stórnót HK og Stiga 13. nóvember, Adidasmót Víkings 20. nóvember, Héraðsmót HSK 20. nóvember og leikir í deildakeppninni 26.-28. nóvember verið lesin inn í styrkleikalistann.
Nokkrir nýir leikmenn voru metnir inn á styrkleikalistann vegna árangurs síns í fyrstu leikjum sínum og þrír leikmenn komu aftur inn á virka listann eftir nokkurra ára fjarveru.
Til að skoða styrkleikalistann er valinn flipinn Styrkleikalisti efst á þessari síðu, og er þá hægt að skoða listann og fletta upp einstökum leikmönnum og þeim leikjum sem telja á listanum. Talan fjöldi móta, fyrir aftan hvern leikmann, telur ekki með leiki í deildarkeppninni.
Ef eitthvað er vitlaust skráð, vinsamlegast hafið samband við Ástu ([email protected]).
Forsíðumynd af upp og niður móti BH í okt. 2021, tekin af fésbókarsíðu BH.