Úrslit á Reykjavíkurleikunum í borðtennis 2022
Reykjavíkurleikarnir í borðtennis 2022 – Reykjavík International Games.
Glæsilegu og vel heppnuðu borðtennismóti lokið.
Sigurvegarar mótsins Víkingarnir Nevena Tasic og Ingi Darvis Rodriguez
Borðtennismóti Reykjavíkurleikana 2022 fór fram í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal 29. janúar 2022 í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Keppt var í karla og kvennaflokki þar sem 25. leikmenn léku í karlaflokki og 6. leikmenn í kvennaflokki. Góðir gestur Peter Svenningsen frá Danmörku lék á mótinu.
Í Karlaflokki léku í undanúrslitum Ingi Darvis Víkingi gegn Birgir Ívarssyni BH, leikar fóru þannig að Ingi Darvis sigraði örugglega 4 – 0 (12-10, 11-2, 11-4 og 11-4). Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Íslandsmeistarinn Nevena Tasic Víkingi gegn Ársól Arnardóttur KR, þar sem Nevena sigraði örugglega 4 – 0 (11-3, 11-6, 11-9 og 11-4). Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur. Leikar fóru þannig að Nevena sigraði 4 – 0 (11-2, 11-5, 11-5 og 11-2). |
Úrslitin í mótinu voru þannig:
Einliðaleikur karla:
1. Ingi Darvis Rodriguez Víkingur
2. Peter Svenningsen Danmörk
3-4. Magnús Gauti Úlfarsson BH
3-4. Birgir Ívarsson BH
Einliðaleikur kvenna:
1. Nevena Tasic Víkingur
2. Aldís Rún Lárusdóttir KR
3-4. Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingur
3-4. Ársól Arnardóttir KR