Leikir íslenska landsliðsins á HM í Dortmund.
Íslenska landsliðið, skipað þeim Magnúsi K Magnússyni, Adam Harðarssyni, Davíð Jónssyni og Kára Mímissyni er á leið til Dortmund, Þýskalandi. Kári kom inn í liðið vegna fjarveru Guðmundar Stephensen sem komst ekki á mótið.
Dregið var í riðla í dag. Íslenska liðið leikur í 5. deild þar sem eru 24 lið. Í riðli með Íslenka liðinu eru Togo, Babados, Panama, Nepal og Zambia. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður nk. mánudag kl. 10.00 við Zambiu. Upplýsingar um riðil Íslendinga á Heimsmeistaramótinu er að finna hér.