Öruggur íslenskur sigur á Kosovo í lokaleiknum
Íslenska karlaliðið sigraði Kosovo 3-0 í lokaleik B-riðils í forkeppni EM landsliða. Liðið varð því í 4. sæti riðilsins en Kosovo í 5. sæti. Allir einliðaleikirnir unnust 3-1.
Búlgaría vann Noreg 3-0 í úrslitaleik riðilsins en með norska liðinu lék m.a. hinn hálf-íslenski Borgar Haug.
Úrslit úr einstökum leikjum
Ísland – Kosovo 3-0
Ingi Darvis Rodriguez – Fatih Karabaxhak 3-1 (11-9, 3-11, 11-6, 11-3)
Magnús Gauti Úlfarsson – Kreshnik Mahmuti 3-1 (5-11, 11-9, 11-9, 11-7)
Magnús Jóhann Hjartarson – Bend Hajdar 3-1 (7-11, 11-3, 11-6, 11-9)
Forsíðumynd af Magnúsi Jóhanni úr myndasafni.