Gengi Íslendinga á HM í Dortmund
Íslendingar léku fyrsta leik sinn á heimsmeistaramótinu í Dortmund í Þýskalandi kl. 10.00 í morgun gegn liði Zambíu. Íslendingar unnu örugglega 3-0. Þeir leikmenn sem spiluðu voru Davíð Jónsson, Magnús K Magnússon og Adam Harðarson. Næsti leikur Íslendinga er kl. 16.00 í dag við lið Barbados.
Á morgun þriðjudag leika Íslendingar við lið Panama og Togo og á miðvikudag við lið Nepal.
Hægt er að fylgjast með riðli Íslendinga á mótinu hér.