Bjarni Bjarnason tekur þátt í EM öldunga
Bjarni Þorgeir Bjarnason, borðtennismaður úr HK og Íslandsmeistari í einliðaleik karla 50-59 ára, tekur þátt í EM öldunga (40 ára og eldri), sem fram fer í Rimini á Ítalíu 25. júní til 2. júlí.
Bjarni tekur þátt í einliðaleik í sínum aldursflokkki.
Skráðir þátttakendur á mótinu eru 2.823.
Hægt er að fylgjast með gengi Bjarna á heimasíðu mótsins: https://www.evc2022.it/en/