Úrtökumót Ólympíuleikanna í Luxemborg.
Guðmundur Stephensen lék í dag á úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana í Luxemborg. Hann vann Cekic Irfan frá Svartfjallalandi (nr. 568 á heimslistanum) örugglega 4-0 (11-5, 11-8, 11-9 og 12-10). Síðar um daginn lék hann gegn Machado Carlos frá Spáni (nr. 84 á heimslistanum). Machado Carlos vann þann leik 4-0 (11-4, 11-8, 11-2, 11-6). Aðeins tveir efstu menn í riðlinum komast áfram og eru það þeir Machado Carlos frá Spáni og Zhmudenko Yaroslav. Zhmudenko leikur á morgun við Paul Drinkhall, Englandi og Machado Carlos við Liam Pitchford Englandi.