Fríður Rún og Kári valin borðtennisfólk ársins hjá KR
Á aðalfundi KR í síðustu viku var tilkynnt val á borðtennisfólki ársins hjá KR fyrir árið 2011-2012. Fyrir valinu urðu Fríður Rún Sigurðardóttir og Kári Mímisson. Fengu þau viðurkenningu frá aðalstjórn KR ásamt íþróttamönnum KR í öðrum greinum.
ÁMU
Mynd: Ásta M. Urbancic