Liðakeppni lokið á Norður-Evrópumóti unglinga
Liðakeppninni á Norður-Evrópumóti unglinga lauk í gær. Íslenska junior lið drengja sigraði Færeyjar 3-1 og hafnaði í 8. sæti af 9 liðum.
Ísland-II í kadettflokki pilta hafnaði í 10. sæti og Ísland-I í 12. sæti af 12 liðum. Eini leikurinn sem Ísland-II vann var á móti Íslandi-I.
Junior stúlkurnar höfnuðu í 6. og síðasta sæti í sínum flokki en þar var ekkert lið frá Færeyjum.
Einstaklingskeppnin hófst í gær og lýkur í dag. Þar er keppt um einstök sæti, svo íslensku krakkarnir fá marga leiki í reynslubankann.
ÁMU
Stelpurnar okkar í Eistlandi, mynd frá Evu Jósteinsdóttur.