Lok þjálfaranámskeiðs ETTU/ITTF
Síðasti dagur þjálfaranámskeiðs ETTU/ITTF var í dag. Skipulögðu þátttakendur hjólastólamót í ÍFR þar sem tekið var á öllum helstu þáttum í mótahaldi. Í dag eru fjórir Íslendingar með 1. stigs þjálfaragráðu frá ITTF. Til þess að haldið verði 2. stigs þjálfaranámskeið á Íslandi þurfa minnst tíu einstaklingar að hafa lokið 1. stiginu. Þurfa þátttakendur nú að klára 30 klst. þjálfun þar sem fimm klukkustundir þurfa að vera undir handleiðslu landsliðsþjálfarans Bjarna Þ Bjarnasonar.