Keppni hefst í 1. deild kvenna í kvöld
Keppni í 1. deild kvenna hefst í kvöld. Fjögur lið eru skráð til leiks í deildinni, HK, KR-A, KR-B og Víkingur.
Í kvöld kl. 20 tekur lið Víkings á móti KR-B í TBR-húsinu.
Leik KR-A og HK, sem einnig átti að fara fram í kvöld, hefur verið frestað til mánudagsins 15. október kl. 20.
ÁMU
Íslands- og deildarmeistarar Víkings í 1. deild kvenna 2012 hefja titilvörnina í kvöld.