Piotr Herman og Anna Marczak sigruðu á BR Open
Þann 17. desember 2022 fór fram 2.flokksmótið BR Open 2022 hjá Borðtennisfélag Reykjanesbæjar í Keflavík.
Vegna óveðurs komust leikmenn BH og KR því miður ekki á mótið. Mótið sóttu að mestu leikmenn BR og leikmaður frá HK.
Í 2.flokki kvenna unnu til verðlauna:
1. Anna Marczak, HK
2. Emma Nizianska, BR
3. Ewa Rzezniczak, BR
Í 2.flokki karla unnu til verðlauna:
1. Piotr Herman, BR
2. Piotr Brys, BR
3.-4. Jón Gunnarsson, BR
3.-4. Grzegorz Rucinski, BR
Yfirdómari mótsins var Bjarni Þorgeir Bjarnason.
Frétt og myndir frá BR.