Aldursflokkamót BH laugardaginn 21. janúar 2023
Aldursflokkamót Borðtennisdeildar BH mun fara fram laugardaginn 21. janúar nk. í stóra salnum í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Strandgötu 53, Hafnarfirði.
DAGSKRÁ OG FYRIRKOMULAG
11:00 Einliðaleikur hnokka f. 2012 og síðar
11:00 Einliðaleikur táta f. 2012 og síðar
12:00 Einliðaleikur pilta f. 2010-2011
12:00 Einliðaleikur telpna f. 2010-2011
13:00 Einliðaleikur sveina f. 2008-2009
13:00 Einliðaleikur meyja f. 2008-2009
14:00 Einliðaleikur drengja f. 2005-2007
14:00 Einliðaleikur stúlkna f. 2005-2007
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 20. janúar nk. kl. 14:00.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld: 2.000 krónur á mann. Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH: Kt: 620709-0180 0544-26-16207 Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].
Senda skal tilkynningu við millifærslu á netfangið [email protected] og setja inn kennitölu leikmanns, sem greitt er fyrir.
Mótsstjórn skipa Ingimar Ingimarsson, Tómas Ingi Shelton og Jóhannes Bjarki Urbancic
Skráningar og spurningar berist til [email protected]