KR-B vann HK-C í 2. deild karla
KR-B og HK-C áttust við í frestuðum leik í 2. deild karla 22. febrúar. KR-B sigraði 6-0.
Úrslitin urðu til þess að HK-C datt niður í 4. sæti deildarinnar og lýkur keppni með 10 stig eins og BR-A, en BR-A hefur hagstæðara hlutfall unninna og tapaðra leikja.
Lið KR-B er öruggt í 2. sæti deildarinnar með 15 stig en á enn eftir að leika við Akur, en sá leikur fer fram á Akureyri 24. mars.
Í úrslitakeppni 2. deildar leika því HK-B og HK-C annars vegar og hins vegar KR-B og BR-A.
Forsíðumynd af KR-B frá því fyrr í vetur.