Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga 2023

Íslandsmót unglinga í borðtennis fer fram í TBR Íþróttahúsinu við Gnoðarvog helgina 18. – 19. mars 2023. Mótið hefst á laugardeginum kl.11:00 og lýkur með verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka eftir úrslitaleiki á sunnudeginum um kl. 14:30.

Keppt verður í tvenndarkeppni, tvíliðaleik drengja og stúlkna og í einliðaleik drengja og stúlkna.

Dagskrá laugardaginn 18. mars:

Tvenndarkeppni:
Kl. 11:00 Tvenndarkeppni 13 ára og yngri, fædd 2010 og síðar.
Kl. 11:00 Tvenndarkeppni 14-15 ára, fædd 2008-2009.
Kl. 14:30 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 2005-2007.

Einliðaleikur fram að undanúrslitum:
Kl. 11:00 Einliðaleikur hnokka 11ára og yngri, fæddir 2012 og síðar.
Kl. 11:00 Einliðaleikur táta 11 ára og yngri, fæddar 2012 og síðar.
Kl. 12:00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2010-2011.
Kl. 12:00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2010-2011.
Kl. 13:00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2008-2009.
Kl. 13:00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2008-2009.
Kl. 14:00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2005-2007.
Kl. 14:00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2005-2007.

Fyrirkomulag keppni:
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót.

Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Leikið verður með þriggja stjörnu kúlum. Farið verður eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ við röðun í mótið. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld og skráning:
Þátttökugjald er 2.500 kr í einliðaleik og 2.000 kr fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr á mann).

Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 15. mars kl 18:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma.

Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693.

Dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu fimmtudaginn 16. mars kl. 18:15.

Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafa þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.

Landsdómarar eru hvattir að gefa sig fram við mótsstjórn til að falast eftir dómarastarf á mótinu og fá þeir greitt fyrir.

Yfirdómari: Árni Siemsen.
Mótshaldari: Borðtennisdeild Víkings.
Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Ársæll Aðalsteinsson, Jóhann Bjarnason, Nevena Tasic, Eyrún Elíasdóttir.

Dagskrá sunnudaginn 19. mars:

Tvíliðaleikur:
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur pilta 13 ára og yngri, fæddir 2010 og síðar.
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur telpna 13 ára og yngri, fæddar 2010 og síðar.
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur sveina14-15 ára, fæddir 2008-2009.
Kl. 10:00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2008-2009.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2005-2007.
Kl. 11:00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2005-2007.

Einliðaleikur –undanúrslit og úrslit:
Kl 12:30 Einliðaleikur hnokka 11 ára og yngri, fæddir 2012 og síðar.
Kl. 12:30 Einliðaleikur táta 11 ára og yngri, fæddar 2012 og síðar.
Kl. 13:00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2010-2011.
Kl. 13:00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2010-2011.
Kl. 13:00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2008-2009.
Kl. 13:00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2008-2009.
Kl. 13:30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2005-2007.
Kl. 14:00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2005-2007.

F.h. Borðtennisdeildar Víkings
Pétur Ó. Stephensen

Auglýsing: Íslandsmót unglinga 2023

Aðrar fréttir