Úrslit fjórða stigamóts Unglingamótaraðarinnar
Unglingamótaröðin í borðtennis, sunnudaginn 25. nóv 2012.
Fjórða mótið í unglingamótaröðinni fór fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 25. nóv 2012. Líf og fjör var í TBR húsinu
og margir bráðskemmtilegir leikir fyrir fjölmarga áhorfendur. Keppendur komu frá félögunum Víkingi, KR, HK og BH.
Það er alveg ljóst að unglingarnir í borðtennis hafa tekið stórstígum framförum á undanförnum vikum og mánuðum,og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.