Ársþing BTÍ 2023 verður haldið 13. maí
Borðtennisþing Borðtennissambands Íslands verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sal C, laugardaginn 13. maí 2023 kl.15:00 sbr. 5. gr. laga sambandsins.
Kjörbréf til aðildarfélaga verða send út á næstu dögum.
Frestur til að skila inn breytingatillögum á lögum og reglugerðum er 21 dögum fyrir þingið eða í síðasta lagi 22. apríl. Breytingatillögur skulu sendar á [email protected].
Ekki verður tekið við breytingatillögum eftir þann tíma. BTÍ mun senda breytingatillögur út til kynningar tveimur vikum fyrir þingið eða í síðasta lagi 29. apríl.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Þingsetning.
- Kjör fundarstjóra og fundarritara.
- Staðfesta lögmæti fundarins.
- Kosning kjörbréfanefndar.
- Fara yfir fundargerð síðasta þings.
- Afhending viðurkenninga.
- Ávörp gesta.
- Fráfarandi stjórn gefur skýrslu.
- Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
- Reikningar bornir undir atkvæði.
- Fjárhagsáætlun.
- Lagabreytingar.
- Umræður og afgreiðsla á tillögum sem þinginu hafa borist.
- Kosning stjórnar og varamanna.
- Kosning skoðunarmanna reikninga.
- Val fulltrúa á íþróttaþing.
- Önnur mál.
- Ræða formanns.
- Þingslit.
- Fyrir hönd stjórnar Borðtennissambands Íslands
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir
formaður BTÍ
Þingfulltrúar
Hér fyrir neðan má sjá fjölda þingfulltrúa á ársþingi 2023
Félag | Iðkendur | Þingfulltrúar | |
Akur | 14 | 2 | |
BH | 100 | 4 | |
BR | 29 | 3 | |
Dímon | 82 | 4 | |
Garpur | 41 | 3 | |
HK | 40 | 3 | |
ÍFR | 1 | 2 | |
KR | 151 | 6 | |
Umf. Selfoss | 17 | 2 | |
Ungmf. Samherjar | 8 | 2 | |
Víkingur | 58 | 4 | |
Örninn | 4 | 2 |
Fréttin var uppfærð 7. maí 2023