Styrktarsjóður BTÍ 2023
Árið 2020 samþykkti stjórn BTÍ reglugerð um styrktarsjóð BTÍ til þess að formfesta styrki til leikmanna, þjálfara og dómara innan hreyfingarinnar. Markmið styrkveitinga á vegum BTÍ er að styrkja afreksfólk í borðtennis og borðtennisíþróttina á ÍslandI.
Þann 1. maí rennur út umsóknarfrestur sjóðsins fyrir tímabilið 2022 – 2023, sbr. 3. gr. reglugerðarinnar.
Stefnt er að ákvörðun um úthlutun fyrir ársþingið 13. maí nk.
Við hvetjum áhugasama til þess að senda inn umsóknir á [email protected].