Ljóst hvaða lið leika í úrslitum í deildinni 29. apríl
Leikið var í undanúrslitum í deildakeppninni í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 22. apríl. Það er orðið ljóst hvaða lið leika í úrslitum í deildunum, en í öllum tilfellum eru það liðin sem enduðu í efstu sætunum í deildakeppninni við lok keppni í vetur.
Í 1. deild verða það BH-A og KR-A sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Í 2. deild eru það HK-B og KR-B sem mætast í úrslitum og í 3. deild leika KR-E og Víkingur-C.
Í undanúrslitum í 3. deildinni reyndi í fyrsta skipti á nýja reglu um bráðabana, þegar KR-E lagði Garp-A eftir harða baráttu.
1. deild karla
BH A – HK A 6-0
KR A – BH B 6-4
2. deild karla
HK B – HK C 6-2
KR B – BR A 6-0
3. deild karla
KR E – Garpur A 5-5 (5-3)
Víkingur C – HK D 6-2
Úrslit úr einstökum leikjum koma fljótlega inn á vef Tournament Software.