Tólf félög og 37 fulltrúar þeirra eiga rétt til setu á ársþingi BTÍ 13. maí
Á ársþingi BTÍ eiga sæti fulltrúar félaga í samræmi við fjölda virkra iðkenda í borðtennis, og skal miða við fjölda virkra iðkenda á birtum styrkleikalista BTÍ næstliðin þrjú almanaksár fyrir þing, eins og segir í 5. gr. laga BTÍ.
Á ársþingi BTÍ þann 13. maí nk. eiga tólf félög rétt á að senda samtals 37 fulltrúa, sem hafa atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga ýmsir aðrir rétt til setu á þinginu með málfrelsi og tillögurétt, t.d. stjórn og varastjórn BTÍ, sbr. 6. gr. laga BTÍ.
Þingfulltrúar
Hér fyrir neðan má sjá fjölda þingfulltrúa á ársþingi 2023:
Félag | Iðkendur | Þingfulltrúar | |
Akur | 14 | 2 | |
BH | 100 | 4 | |
BR | 29 | 3 | |
Dímon | 82 | 4 | |
Garpur | 41 | 3 | |
HK | 40 | 3 | |
ÍFR | 1 | 2 | |
KR | 151 | 6 | |
Umf. Selfoss | 17 | 2 | |
Ungmf. Samherjar | 8 | 2 | |
Víkingur | 58 | 4 | |
Örninn | 4 | 2 |