Borðtennismaður og kona ársins
Guðmundur Stephensen Víkingi/Enjoy deploy Zoetermeer og Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi hafa verið kosin borðtennismaður og borðtenniskona ársins 2012.
Guðmundur Stephensen: Guðmundur varð á síðasta ári Íslandsmeistari í 19 sinn. Einnig varð hann Íslandsmeistari í tvíliðaleik karla með Magnúsi K Magnússyni og í tvenndarleik með Evu Jósteinsdóttur. Eins og árið áður lék hann einnig í hollensku úrvalsdeildinni með liði sínu Zoetermeer en Guðmundur stóð sig frábærlega með liðinu. Lék liðið til úrslita um Hollandsmeistaratitilinn en varð að láta sér nægja 2.sætið. Liðið komst í 16 liða úrslit Evrópukeppni félagsliða en liðið hafði áður unnið alla leiki sína í tveimur undanriðlum. Sem þjálfari leiddi hann A lið Víkinga til sigurs í 1. deild karla.
Lilja Rós Jóhannesdóttir: Lilja varð á síðasta ári Íslandsmeistari kvenna og einnig Íslandsmeistari í tvíliðaleik með Evu Jósteinsdóttur. Lilja Rós sigraði í einliðaleik í 10. skiptið og jafnaði þar með árangur Ragnhildar Sigurðardóttur, sem varð Íslandsmeistari 10 sinnum á árunum 1978-1990. Einnig varð Lilja Íslandsmeistari í deildarkeppninni með liði sínu Víkingi.
Stjórn BTÍ óskar þeim Guðmundi og Lilju til hamingju með kosninguna.