Tveir íslenskir borðtennismenn keppa á Special Olympics í Berlín
Tveir íslenskir borðtennismenn keppa á Special Olympics í Berlín, en leikarnir hefjast þann 17. júní og lýkur 25. júní.
Íslensku leikmennirnir eru Inga Hanna Jóhannesdóttir úr ÍFR og Magnús Guðjónsson úr HK. Þjálfari þeirra er Bjarni Þorgeir Bjarnason.
Á leikunum er keppt í fjölmörgum íþróttum og taka íslenskir keppendur þátt í tíu þeirra.
RÚV gerir þætti um þátttöku Íslands á leikunum sem verða sýndir síðar.