KR Open 25. og 26. nóvember
Borðtennisdeild KR heldur KR Open í fyrsta sinn helgina 25.-26. nóvember 2023 í Íþróttahúsi Hagaskóla.
Fyrirkomulag keppni
- Keppa má í 3 flokkum alls, en þó einungis 1 flokki í hverri „blokk“.
- Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fá fleiri leiki.
- Flokkar í 1. & 3. blokk hefjast á milli 14:00-16:00.
- Flokkar í 2. blokk hefjast á milli 10:00-12:00.
- Keppt verður í 4-5 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan
útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum.
Frekari útskýringar á ákveðnum flokkum:
- Aldursskiptir flokkar miðast við sömu fæðingarár og Íslandsmót, svo u11 eru iðkendur fæddir 2013 og síðar, u14 eru iðkendur fæddir 2010 og síðar og svo framvegis.
- Í flokki öfugrar handar verður að leika með sinni veikari hönd, þessi flokkur gildir ekki á styrkleikalista BTÍ.
- Opni byrjendaflokkurinn er opinn byrjendum á öllum aldri, svo við hvetjum iðkendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni að taka þátt. Ef þú byrjaðir að æfa borðtennis á þessu ári eða ert ekki að æfa, þá ertu byrjandi 🙂
- Varðandi meistaraflokk elite flokkana
- Öllum er heimilað þátttöku í þessum flokkum, það er ekki skylda að vera í meistaraflokki.
- Efstu 4 skv styrkleikalista fara beint áfram í útsláttarkeppni, en það veltur þó á fjölda keppenda.
Skráning
Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í.
Skráningafrestur rennur út fimmtudaginn 23. nóvember kl 19:00.
Nánari upplýsingar í auglýsingu.
Uppfært: 17.11.2023