BH OPEN 2024. Helgina 20.-21. janúar nk.
BH OPEN 2024 verður haldið í annað sinn helgina 20.-21. janúar nk. í Íþróttahúsinu við Strandgötu 53 í Hafnarfirði.
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 1. Blokk
Hefst kl 09:00 – 11:00 |
Laugardagur 2. Blokk
Hefst kl 13:00 – 15:00 |
Flokkur | Flokkur |
Stelpur u11 | Stelpur u13 |
Strákar u11 | Strákar u13 |
Stelpur/Strákar u15 A | Stelpur/Strákar u19 A |
Stelpur/Strákar u15 B (<1250 stig) | Stelpur/Strákar u19 B (<1400 stig) |
Strákar U23 | Meistaraflokkur karla Elite |
Stelpur U23 | Meistaraflokkur kvenna Elite |
Opinn flokkur B (<2000 stig) | Karlar/Konur 40 ára og eldri |
Sunnudagur 3. Blokk
Hefst kl 09:00 – 11:00 |
Sunnudagur 4. Blokk
Hefst kl 13:00 – 15:00 |
Flokkur | Flokkur |
Stelpur u12 | Stelpur u14 |
Strákar u12 | Stelpur u14 B (<1200 stig) |
Stelpur/Strákar u17 A | Strákar u14 |
Stelpur/Strákar u17 B (<1350 stig) | Strákar u14 B (<1200 stig) |
Opinn flokkur A (<2500 stig) | Stelpur/Strákar u21 A |
Opinn flokkur C (<1500 stig) | Stelpur/Strákar u21 B (<1500 stig) |
Karlar/Konur 50 ára og eldri | Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ |
Fyrirkomulag:
Keppa má í 4 flokkum alls, en þó einungis 1 flokki í hverri „blokk“. Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fá fleiri leiki.
Flokkar í 1.&3. blokk hefjast á milli 09:00-11:00.
Flokkar í 2.&4. blokk hefjast á milli 13:00-15:00.
Keppt verður í 3-4 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum.
Í flokkinum Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ parast keppendur saman eftir styrkleikalistanum.
Fyrst parast þeir keppendur sem eru efst og neðst á styrkleikalistanum saman.
Næst parast þeir sem eru næst efst og næst neðst og svo koll af kolli.
Skráning
Skráning fer fram í gegnum skráningarform BH. Skráningarformið má finna hér:
https://docs.google.com/forms/d/1GEjVIC6wnk42uOnkIESNAIIpHLDy48Qdv378Z7uHSoM/edit
Ef skráningarformið gengur ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfang borðtennisdeildar BH, [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í.
Skráningafrestur rennur út þriðjudaginn 16. janúar kl 19:00.
Röðun
Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ þar sem að lágmarki 4 leikmenn fá röðun í hverju flokki.
Í Opnum Flokki A og Meistaraflokki karla/kvenna Elite fara efstu 4 leikmenn (skv styrkleikalistanum) beint áfram í útsláttarkeppnina.
Raðað verður eftir styrkleikalista BTÍ 1.janúar 2024.
Þáttökugjöld
- Meistaraflokkur Elite kr 3000,-
- Tvíliðaleikur „Hæsti/Lægsti“ kr 1500,-
- Aðrir flokkar kr 2000,-
Leikmenn sem skrá sig í 3 flokka fá þann 4 frítt!
Gjaldið greiðist á mótsstað eða inn á bankareikning Borðtennisdeildar BH:
Kt: 620709-0180 & Rknr 0544-26-16207
Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki.
Í Meistaraflokki Elite fær sigurvegari kr 30.000,-.
Í Tvíliðaleik „Hæsti/Lægsti“ fær sigur parið kr 15.000,-.
Í Opnum Flokki A, B og C fær sigurvegarinn kr 10.000,-.
Búnaður
Borð: Butterfly EUROPA keppnisborð
Kúlur: Stiga Perform 3* 40+
Mótstjórn og Yfirdómari
Mótstjórn skipa Ingimar Ingimarsson, Jóhannes Bjarki Urbancic og Tómas Ingi Shelton. Allar fyrirspurnir til mótstjórnar skulu berast til [email protected].
Yfirdómari mótsins verður Pétur Marteinn Urbancic Tómasson.