Íslandsmótið í flokkakeppni unglinga 2024
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2024 fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla, Sólvöllum 2, 800 Selfossi, laugardaginn 27. janúar 2024. Borðtennissamband Íslands verður umsjónaraðili mótsins.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
- Piltar og telpur fædd 2011 og síðar (13 ára og yngri)
- Sveinar og meyjar fædd 2009-2010 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2006-2008 (16-18 ára)
Dagskrá
Laugardagur 27. janúar 2024
- 10:00 – Piltar fæddir 2011 og síðar
- 10:00 – Telpur fæddar 2011 og síðar
- 12:00 – Meyjar fæddar 2009-2010
- 12:00 – Sveinar fæddir 2009-2010
- 14:00 – Drengir fæddir 2006-2008
- 14:00 – Stúlkur fæddar 2006-2008
Keppnisfyrirkomulag
Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv. Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu liði í einum flokki.
Keppt er skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur, og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga þarf til að vinna leik.
Leikið verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk. Raðað verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv. nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.
Leikið verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum á 10 keppnisvöllum.
Leikmenn verða að leika í búningum síns félags.
Skráning og þátttökugjöld
Þátttökugjald í flokkakeppnina er kr. 4.000,- á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennissambands Íslands sem er 0334-26-050073, kt. 581273-0109. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið helst greiðast um leið og skráning fer fram, en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Skráningar má senda á [email protected]. Kennitölur leikmanna skulu fylgja með öllum skráningum.
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 25. janúar 2024 kl. 18:00.
Mótstjórn
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson
Stefán Sverrisson
Tómas Ingi Shelton
Yfirdómari: Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson
Dregið verður í mótið hjá BH fimmtudaginn 25.janúar 2024 kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.