Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Magnús Kristinn og Eva sigruðu í meistaraflokki á Coca-Cola móti Víkings

Coca Cola mótið í borðtennis fór fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 27. apríl 2013 og var jafnframt síðasta stigamót keppnistímabilsins 2012-2013.  Keppt var í 7 flokkum, meistaraflokki karla og kvenna, 1. flokki karla og kvenna, 2. flokki karla og kvenna og eldri flokki karla. Fjölmargir keppendur komu frá félögunum Víkingi, KR, HK og BH.

Í meistaraflokki karla sigraði Magnús K. Magnússon Víkingi eftir að hafa sigrað Gunnar Snorra Ragnarsson KR í úrslitaleik 3 – 0 (11 – 9, 11 – 8, 12 – 10).

Í meistaraflokki kvenna léku til úrslita Eva Jósteinsdóttir Víkingi gegn Aldísi Rún Lárusdóttur KR. Leikar fóru þannig að Eva sigraði 3 – 0 (11 – 6, 11 – 8, 11- 8).

ÁMU (texti frá Pétri Stephensen)

Verðlaunahafar í meistaraflokki kvenna (Mynd: Pétur Stephensen).

Aðrar fréttir