Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2013 hefur verið settur á vefinn

Styrkleikalisti fyrir 1. maí 2013 hefur verið birtur á heimasíðu Borðtennissambands Íslands, með fyrirvara um réttar skráningar. 

Frá því að síðasti listi var birtur hafa Bikarkeppni félaga, lokamót unglinga, punktamót Dímonar á sumardaginn fyrsta, Coca-Colamót Víkings og leikir í úrslitakeppni í 1. deild karla verið lesnir inn í styrkleikalistann, alls 324 leikir.

Við þessa uppfærslu gerðist það m.a. markvert að Björn Gunnarsson úr HK og Tómas Ingi Shelton úr KR unnu sig upp í 1. flokk karla og Sveina Rósa Sigurðardóttir úr KR og Ólafía Ásbjörnsdóttir úr Dímon í 1. flokk kvenna í fyrsta skipti.


ÁMU

Aðrar fréttir