Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Forgjafarmót Mattia 25. maí – uppfært

Mattia Contu, unglingalandsliðsþjálfari, heldur forgjafarmót í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 25. maí. Keppni hefst kl. 10 en húsið opnar kl. 9 og er öllum opið.

Fyrirkomulag á forgjöfinni verður svona:

Karlar gegn körlum og konur gegn konum

Ef mismunur á stigum er frá 0 til 50 fær leikmaðurinn sem er með færri stig á styrkleikalista 1 stig í forgjöf í hverri lotu.
Ef munur er frá 51 til 80 er forgjöfin 2 stig
Ef munur er frá 81 til 160 er forgjöfin 3 stig
Ef munur er frá 161 til 250 er forgjöfin 4 stig
Ef munur er frá 251 til 350 er forgjöfin 5 stig
Ef munur er frá 351 til 460 er forgjöfin 6 stig
Ef munur er frá 461 eða meira er forgjöfin 7 stig

Ef karlar keppa við konur gildir sami mismunur á stigum en ef karlinn er stigahærri á styrkleikalistanum fær konan eitt stig aukalega í forgjöf. Ef konan er stigahærri fær karlinn einu stigi minna í forgjöf en hann hefði fengið ef hann hefði fengið ef hann hefði keppt við annan karl.

Skráningar sendist í tölvupósti til [email protected]. Setjið BALANCE TOURNAMENT 25 MAY í efnislínuna. Í póstinum komi fram nafn leikmanns, félag og styrkleikastig. Skráningar frestur er til kl. 20 þann 24. maí.

Þátttökugjöld eru 2000 kr. Þar af verða 1000 kr. notaðar í verðlaunafé og verður skipt á milli verðlaunahafa á þennan hátt:

Ef eru 10 leikmenn eða færri eru aðeins veitt ein verðlaun.
Ef leikmenn eru allt að 15 verða veitt tvenn verðlaun (66% fara til sigurvegarans, 33% til þess sem verður í öðru sæti).
EF leikmenn eru fleiri en 15 eru veitt þrenn verðlaun (50% fara til sigurvegarans, 30% til þess sem verður í öðru sæti og 20% til þess sem verður í þriðja sæti).

Forsíðumynd af fésbókarsíðu BTÍ.

Aðrar fréttir