Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Butterfly unglingamótaröð HK og PingPong.is

Butterfly mótaröð HK og PingPong.is samanstendur af þrem mótum í vetur og 8 efstu í hverjum flokki keppa svo á lokamóti í vor þar sem veitt verða vegleg verðlaun frá Butterfly. Laugardaginn 12. október er komið að fyrsta mótinu í mótaröðinni.

Dagskrá

  • 10:00 11 ÁRA OG YNGRI KK&KVK
  • 10:00 12-13 ÁRA KK&KVK
  • 13:00 14-15 ÁRA KK&KVK
  • 13:00 16-18 ÁRA KK&KVK

Leikið verður í riðlum, stelpur í einum og strákar í öðrum. 3-5 lotur og fara tveir efstu keppendurnir upp úr hverjum riðli. Eftir að riðlakeppni lýkur verður leikið með einföldum útslætti.

Þátttökugjald 1.500 kr. greiðist á staðnum

Mótsstjórn: Reynir Georgsson, Óskar Agnarsson og Garðar Malmquist. Yfirdómari er Bjarni Bjarnason

Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hverjum flokki. Leikið verður með hvítum Stiga 3ja stjörnu kúlum.

Skráningar skal senda á [email protected] fyrir kl. 22 fimmtudaginn 10 október

Dregið verður í Íþróttahúsi Snælandsskóla föstudaginn 10 október

Aðrar fréttir