Hákon Atli komst í 8 manna úrslit á opna franska mótinu
Hákon Atli Bjarkason, borðtennismaður úr HK, lék í vikunni á opna franska mótinu fyrir fatlaða borðtennismenn. Hákon lék bæði í einliðaleik og í tvíliðaleik.
Í einliðaleik komst Hákon upp úr riðlinum með sigri á leikmanni frá Brasilíu en tap fyrir sænskum leikmanni. Í 8 manna úrslitum féll Hákon úr leik fyrir leikmanni frá Belgíu.
Í tvíliðaleik lék Hákon með Peter Isherwood frá Kanada. Í riðlinum unnu þeir par frá Kanada en töpuðu fyrir pólsku pari og komust í 8 liða úrslit. Þar féllu þeir úr leik fyrir pari frá Taiwan.
Forsíðumynd frá Hákoni.