Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Pepsi mótið 2024

PEPSI mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu sunnudaginn 1. des 2024.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins:

Sunnudagur 1. des:

kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
kl. 11:00 Byrjendaflokkur (Fyrir þá sem hafa ekki lekið í 2. flokki fyrr)
kl. 12:00 2. flokkur karla og kvenna
kl. 13:00 Meistarafl. karla og kvenna

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 28. nóv kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected]  eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma.  Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379,
reikningsnúmer: 0525-26-3693

Yfirdómarar: Árni Siemsen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen og Nevena Tasic

Dregið verður í mótið fimmtudaginn 28 nóv kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Skráningar: Pétur s-8940040 / [email protected] og sms skeyti.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 28. nóv kl. 17:00.

Myndin er af verðlaunahöfum í 1. flokki karla 2022.

Aðrar fréttir