- 23.10.2013
- Almennt
- Frettir
Leikir 1. deildar karla fimmtudaginn 22. október
Hörkuleikir fóru fram í 1. umferð 1. deildar karla í gær.
Í KR léku KR A og KR B. KR A komst 2-0 yfir en Kári Mímisson vann Hlöðver Hlöðversson 3-0 og Gunnar Snorri Ragnarsson vann Pétur Martein Tómasson 3-0. KR B snéri taflinu við með því að Pétur Gunnarsson vann Einar Geirsson 3-2 og þeir Pétur og Hlöðver unnu Kára og Gunnar í tvíliðaleik. Pétur Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og sigraði Gunnar Snorra Ragnarsson í oddaleik. Kári Mímisson sigraði Pétur Marteinn Tómasson 3-0. Í úrslitaleiknum sigraði Einar Geirsson Hlöðver í oddalotu. Úrslitin því 4-3 fyrir KR A.
Í TBR húsinu áttust við Víkingur A og Víkingur B. Var þar einnig um hörkuleik að ræða en úrslitin voru þar eftirfarandi:
Úrslit leikja:
1. Magnús K. Magnússon Daníel Bergmann 11-2/11-3/11-7= 3 – 0
2. Daði Freyr Guðmundsson Kristján Jónasson 13-15/11-6/14-16/6-11= 1 3
3. Óli Páll Geirsson Sindri Þór Sigurðsson 6 11/10-12/5-11= 0 3
4. Daði/Magnús K Daníel/Sindri 11-7/11-8/6-11/8-11/11-5= 3 2
5. Daði Daníel 11-5/11-7/11-3= 3 0
6. Magnús K Sindra 11-6/9-11/11-7/11-5= 3 1
Úrslit úr einstökum leikjum í leik KR-A og KR-B hafa verið sett inn á úrslitasíðuna.
II (ÁMU uppfærði 26.10.)