Leikir Kára með liði Horreds BTK þann 26. október 2013
Borðtennismaðurinn Kári Mímisson lék tvo leiki með liði sínu Horreds BTK í Svíþjóð laugardaginn 26. október sl. gegn liðum Asa BTK og Tölö BTK. Sigraði lið Horreds báða leikina 8-2. Kári lék 5 leiki í viðureignunum, 4 einliðaleiki og einn tvíliðaleik. Sigraði hann 3 leiki en tapaði tveimur. Nánari úrslit leikjanna er hægt að nálgast hér.