Adidas stigamótið 22. nóvember 2014.
Adidas stigamótið fór fram í herbúðum Víkings í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 22. nóvember 2014.
Fjölmargir keppendur komu frá félögunum Víkingi, KR, HK,BH, UMSE.
Í meistaraflokki karla lékur til úrslita Daði Freyr Guðmundsson Víkingi gegn Einari Geirssyni KR.
Viðureignin var æsispennandi sem lauk með sigri Daða 3 2 (10-12, 11 6, 8 -11, 11 9 og 11 9)
Í meistaraflokki kvenna léku úrslitaleikinn Sigrún E. Tómasdóttir KR gegn Kolfinnu Bjarnadóttir HK.
Leikurinn var mjög spennandi þar sem Sigrún sigraði að lokum 3 2 (11 7, 11 7, 8 -11, 5 11 og 11 8).