Æfingabúðir á Suðurlandi
Helgina 23.-24. mars hélt Bjarni Bjarnason, borðtennisþjálfari, æfingabúðir í Rangárþingi. Góð þáttaka í búðunum, um 20 manna hópur, skv. frétt á fésbókarsíðu BTÍ.
Ekki er að efa að búðirnar hafa verið góður undirbúningur fyrir Íslandsmót unglinga um næstu helgi og er góð þátttaka frá Suðurlandi á mótinu.
ÁMU