Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Æfingabúðir fyrir stelpur á Hvolsvelli 5.-6. janúar nk.

Árlegar æfingabúðir í borðtennis fyrir stelpur verða haldnar á Hvolsvelli helgina 5.-6. janúar.

Stúlkum úr öllum félögum og af hinum ýmsu getustigum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi.

Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og tvíliðaleiksmóti. Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn kynnist öðrum leikmönnum skemmti sér saman. Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli, pizza borðuð og margt annað skemmtilegt. Um búðirnar sjá Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (þjálfari hjá KR) og Tómas Ingi Shelton (unglingalandsliðsþjálfari og þjálfari í BH). Eftir þátttöku bætast fleiri þjálfarar við. Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka. Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.000 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef stelpurnar vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því. Að þessu sinni er stefnan að keyra austur í stað þess að taka strætó, en þjálfarar munu keyra.

Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:

Laugardagur:

11:00 Lagt af stað

12:30 Komið á Hvolsvöll, stutt hádegishressing

13:00-14:30 1. æfing

14:30-16:30 Sund og hressing

16:30-18:00 2. æfing

18:30-19:30 Pizzuveisla (hlaðborð)

19:30-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir

22:30 Svefntími

Sunnudagur:

09:30 Morgunmatur

10:00-11:30 3. æfing

11:30-12:00 Hádegismatur

12:00-14:00 Tvíliðaleiksmót

14:00 Lagt af stað heim

15:30 Komið til baka

Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Auði á netfangið [email protected] og Tómasi á netfangið shelton92@gmail.com og er skráningarfrestur 3. janúar 2017. Ef búðirnar skyldu fyllast gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.

Myndband af æfingabúðunum 2017 er að finna hér og myndband af æfingabúðunum 2018 er að finna hér.

 

Aðrar fréttir