Æfingabúðir fyrir stráka á Hvolsvelli 23. og 24. febrúar nk.
Árlegar æfingabúðir í borðtennis fyrir stráka verða haldnar á Hvolsvelli helgina 23. og 24. febrúar nk.
Drengjum úr öllum félögum og af öllum getustigum býðst að taka þátt og er vonast eftir fjölbreyttum æfingahópi.
Dagskráin byggist aðallega á þremur æfingum og tvíliðaleiksmóti. Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn kynnist öðrum leikmönnum skemmti sér saman. Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli, pizza borðuð og margt annað skemmtilegt. Um búðirnar sjá Skúli Gunnarson (þjálfari í KR) og Jóhann Emil Bjarnason (þjálfari í Víkingi).
Verði þáttaka mikil kunna fleiri þjálfarar að bætast við. Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka. Verð fyrir æfingabúðirnar eru 9.000 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef strákarnir vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því. Að þessu sinni er stefnan að keyra austur í stað þess að taka strætó, en þjálfarar munu keyra. Biðjum við þá foreldra sem hafa tök á að vera á bíl að láta þjálfara í aðildarfélagi vita af því.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Laugardagur:
11:00 Lagt af stað
12:30 Komið á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:00-14:30 1. æfing
14:30-16:30 Sund og hressing
16:30-18:00 2. æfing
18:30-19:30 Pizzuveisla (hlaðborð)
19:30-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
08:00 Morgunmatur
08:30-10:00 3. æfing
10:00-10:30 Hádegismatur
10:30-12:30 Æfingamót
12:30 Lagt af stað heim
14:00-15:00 Komið til baka til Reykjavíkur
Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Skúla á netfangið [email protected] og er skráningarfrestur til 21. febrúar 2019. Ef búðirnar skyldu fyllast gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.
Myndband af æfingabúðum stúlkna 2018 er að finna hér.