Æfingabúðir fyrir stráka á Hvolsvelli 27.-28. janúar
Æfingabúðir í borðtennis fyrir stráka verða haldnar á Hvolsvelli helgina 27.-28. janúar. Strákum úr öllum félögum býðst að taka þátt og er vonast eftir sem fjölbreyttustum æfingahópi. Æfingabúðirnar eru einungis ætlaðar strákum, 15 ára og yngri, sem hafa æft að minnsta kosti í 1 ár.
Ferðin verður lærdómsrík og skemmtileg verður lagt upp úr því að leikmenn æfi og kynnist leikmönnum frá öðrum félögum og skemmti sér með eigin æfingafélögum. Þá verður farið í sund í sundlauginni í íþróttahúsinu á Hvolsvelli,pizza borðuð og margt annað skemmtilegt.
Þjálfarar á svæðinu verða Breki Þórðarson (þjálfari í KR), Skúli Gunnarsson (þjálfari í KR) og Tómas Ingi Shelton (þjálfari í BH).
Gist verður í félagsmiðstöðinni á Hvolsvelli, beint á móti íþróttahúsinu og því nauðsynlegt að taka með vindsæng/dýnu og svefnpoka.
Verð fyrir æfingabúðirnar eru 8.500 kr. sem greiðast við brottför. Innifalið í því er allt uppihald, að undanskildu því ef strákarnir vilja kaupa eitthvað aukalega (eins og bland í poka á laugardagskvöldinu). Möguleiki er fyrir hendi að foreldrar komi með sé áhugi fyrir því.
Farið verður með strætó frá Mjódd á Hvolsvöll. Farið kostar 8 miða á Hvolsvöll og 8 miða til baka og hægt er að kaupa miðana í Mjódd frá kl. 10:00 daginn sem við förum. Strætómiðarnir eru ekki innifaldir í verðinu fyrir æfingabúðirnar. 20 miða spjald fyrir 6-11 ára kostar 1.300 kr. og sami fjöldi fyrir 12-17 ára kostar 3.000 kr.
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Laugardagur:
11:00 Mæting í strætómiðstöðina í Mjódd
11:29 Strætó nr. 51 fer af stað
13:07 Strætó kemur á Hvolsvöll, stutt hádegishressing
13:30-15:00 1. æfing
15:00-17:00 Sund og hressing
17:00-18:30 2. æfing
19:00-20:00 Pizzuveisla (hlaðborð)
20:00-22:00 Frjáls tími, spilakvöld og leikir
22:30 Svefntími
Sunnudagur:
09:30 Morgunmatur
10:00-11:30 3. æfing
11:30-12:00 Hádegismatur
12:00-14:00 Lokamót
15:08 Brottför frá Hvolsvelli með strætó nr. 52
16:57 Strætó kemur í Mjódd
Opnað hefur verið fyrir skráningar hjá Tómasi á netfangið [email protected] og skráningarfrestur er 26. janúar 2017. Ef búðirnar skyldu fyllast gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá. Vinsamlegast látið vita við skráningu ef einhverjar sérþarfir eru varðandi matarræði.
Annars ekki hika við að hafa samband við Tómas þjálfara ef það eru einhverjar spurningar.
Mynd á forsíðu frá Dímon frá Íslandsmóti unglinga 2017 á Hvolsvelli.
ÁMU