Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Æfingabúðir hjá Samherjum í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 17. nóvember nk.

Ungmennafélagið Samherjar munu vera með æfingabúðir laugardaginn 17. nóvember nk.

Fyrirkomulag æfingabúðanna á laugardeginum 17. nóvember er eftirfarandi. Yfirumsjón með æfingabúðunum mun hafa Bjarni Þ Bjarnason þjálfari HK en hann hefur síðastliðin misseri verið í námi í borðtennisþjálfarafræðum við háskólan í Split í Króatíu.  Um er að ræða námsbraut sem komið var á laggirnar af Evrópska borðtennissambandinu (ETTU). Gefst þeim leikmönnum  og þjálfurum sem þátt taka í æfingabúðunum  þarna tækifæri til að nema það sem Bjarni hefur lært.

Auglýsingu um æfingabúðirnar er að finna í hlekk hér og dagskrá æfingabúðanna er aðgengileg hér og einnig í texta hér að neðan.

Æfingabúðir í Hrafnagili laugardaginn 17. nóvember 2018

10:00-12:00 Æfing

Byrjendur

  1. Fh 10 mín og Bh 10 mín
  2. Pot undirsnúningur 2×10 mín
  3. Hringborðtennis forhönd og bakhönd 20 mín

Rétt uppgjöf( kynning)

Lengra komin

  1. upphitun 20mín með innslætti
  2. Forhandarloop 2×7
  3. Bakhandarloop 2×7
  4. Fh loop -2
  5. Bh loop -1
  6. Falkenberg 2x10mín
  7. Uppgjafir og móttökur 2×10
  8. Borðakeppni -2 fyrir tapaða uppgjöf

Allar æfingar maður á mann, sérstök áhersla á rétta tækni og hreyfingar við borðið

12:00-13:00 Matarhlé

13:30-15:30 Æfing

Byrjendur

  1. Upphitun ( hlaup og fleira)
  2. Forhönd( áhersla á tækni)
  3. Bakhönd( áhersla á tækni)
  4. Samsett æfing 1 í bh og 1 í fh
  5. Kynning á loop á block og sýnt hvernig það virkar

Lengra komin

  1. innsláttur og upphitun 20 mín
  2. Samsettar æfingar 1 í bh 2 í fh stýrt frá bh 2×10 mín,2xFalkenberg 2×10 mín, bh fh á bh horni keyrt í róbot sérstök áhersla á stöðu og fótahreyfingar .
  3. Kynning banana og strawberry, forhandarflipp staðsetningar og notkun þessara högga í keppni.

15:30-16:30 Æfing

16:30-18:30 Æfing

Tvíliða og tvenndarleikur

Farið yfir helstu þætti tvíliða og tvenndarleikja og æfingar til að bæta þær td með róbot 

18:30 Matur

19:00-20:00

Þjálfaraspjall

Hvar liggja villurnar og leiðir til úrbóta

Engir tveir eru eins!

Mismunandi áherslur í þjálfun einstaklinga

Kúluæfingar og gildi þeirra

Aðrar fréttir