Æfingabúðir í borðtennis fyrir stelpur voru haldnar á Hvolsvelli um síðustu helgi
Helgina 9.-10. febrúar fóru fram æfingabúðir fyrir stelpur í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Þátttakendur voru tæplega 20 talsins og komu frá Dímon, Heklu og KR.
Æfingabúðirnar voru í umsjón Auðar Tinnu Aðalbjarnardóttur, Einars Geirssonar og Jóhannesar Bjarka Tómassonar.
ÁMU
Þáttakendur í æfingabúðunum með þjálfurum