Æskan sigraði Samherja-B í 2. deild norður
Æskan og B-lið Samherja mættust í 2. deild norður í Valsárskóla á Svalbarðseyri 10. nóvember. Æskan sigraði 4-2. Bæði liðin hafa 2 stig eftir tvo leiki, þ.e. hafa unnið einn leik og tapað einum.
Úrslit úr einstökum leikjum:
Æskan – Samherjar-B 4-2
- Starri Heiðmarsson – Jón Elvar Hjörleifsson 0-3
- Hjalti Þór Hreinsson – Rósberg Halldór Óttarsson 3-2
- Þorri Starrason – Sigurður Ingi Friðleifsson 3-2
- Hjalti Þór/Starri – Jón Elvar/Rósberg Halldór 1-3
- Hjalti Þór Hreinsson – Jón Elvar Hjörleifsson 3-1
- Starri Heiðmarsson – Sigurður Ingi Friðleifsson 3-0
Á meðfylgjandi mynd eru leikmenn Æskunnar, f.v. Starri, Hjalti Þór og Þorri.