Akur-A lagði Æskuna og sigrar í norðurriðli 2. deildar
A-lið Akurs lagði Æskuna 4-0 í 13, umferð í norðurriðli 2. deildar í kvöld. Eftir leikinn hefur Akur-A 24 stig eftir 12 leiki og hefur tryggt sér sigur í riðlinum þegar liðið á tveimur leikjum ólokið. Lið Æskunnar hefur 8 stig.
Tveir nýliðar voru í liði Æskunnar í kvöld, þeir Fannar Logi Jóhannesson og Hjalti Gylfason.
Úrslit úr einstökum leikjum
Æskan – Akur-A 0-4
- Matthías Benjamínsson – Markus Meckl 0-3
- Starri Heiðmarsson – Hlynur Sverrisson 0-3
- Fannar Logi Jóhannesson – Júlíus Fannar Thorarensen 0-3
- Hjalti Gylfason/Starri – Hlynur/Markus 0-3
Á forsíðumyndinni má sjá lið Æskunnar í kvöld, mynd frá Starra Heiðmarssyni.
ÁMU