Akur-A sigraði í 4. deild
Úrslitakeppni 4. deildar fór fram í Glerárskóla á Akureyri laugardaginn 18. apríl. Þrjú lið léku til úrslita, tvö efstu liðin úr suðurriðli (KR-F og HK-D) og sigurliðið í norðurriðli (Akur-A).
Akur-A sigraði í deildinni, en liðið vann báða leiki sína og leikur í 3. deild á næsta keppnistímabili. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í 4. deild, svo Akursmenn eru fyrstu Íslandsmeistarar í 4. deild. Lið Akurs-A er mjög alþjóðlegt en allir hafa leikmennirnir búið lengi á Akureyri. Liðið skipa þeir Lukasz Styczynski frá Póllandi, Markus Meckl frá Þýskalandi og Viacheslav Cherepynskyi frá Úkraínu.
Úrslit úr einstökum viðureignum:
HK-D – KR-F 4-2
Akur-A – KR-F 4-1
Akur-A – HK-D 4-2
HK-D varð í 2. sæti og leikur því umspilsleik við KR-D, sem varð í 5. sæti í 3. deild. Sigurvegarinn úr leiknum leikur í 3. deild á næsta ári. Umspilsleikirnir fara fram laugardaginn 25. apríl kl. 11 í TBR-húsinu.
Mynd frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.


