Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Aldís og Davíð borðtennisfólk KR

Aldís Rún Lárusdóttir og Davíð Jónsson voru valin borðtennisfólk KR 2019. Tilkynnt var um valið á uppskeruhátíð Borðtennisdeildar KR þann 10. maí. Þá fékk Aldís viðurkenningu frá félaginu en Davíð er við nám erlendis og fær hana afhenta síðar.

Í umsögn stjórnar deildarinnar segir þetta um borðtennisfólk ársins:

Aldís Rún Lárusdóttir

Aldís varð tvöfaldur Íslandsmeistari í borðtennis vorið 2019. Hún sigraði í tvíliðaleik með Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur og í tvenndarleik með Davíð Jónssyni. Þá fékk Aldís brons í einliðaleik á mótinu. Hún var í A-liði KR, sem komst í undanúrslit 1. deild kvenna vorið 2019, og tapaði aðeins einum einliðaleik í deildarkeppninni á keppnistímabilinu.

Aldís lék með landsliðiðinu á Arctic mótinu á Grænlandi í maí 2018 og hefur verið valin í landsliðið fyrir Smáþjóðaleikana 2019 og í A-landsliðið fyrir Arctic mótið 17.-19. maí 2019.

Auk þess hefur Aldís verið formaður Borðtennisdeildar KR undanfarin ár og verið öflugur leiðtogi  borðtennisfólks innan félags sem utan.

Davíð Jónsson

Davíð varð Íslandsmeistari í tvenndarleik á Íslandsmótinu 2019 með Aldísi Rún Lárusdóttur. Þá varð Davíð í 2. sæti í einliðaleik og í 2. sæti í tvíliðaleik með Ingólfi Sveini Ingólfssyni á mótinu. Davíð stundar nám í Slóvakíu, og hefur því ekki tekið þátt í fleiri mótum á Íslandi á keppnistímabilinu.

Davíð var valinn í A-landsliðið fyrir Arctic mótið 17.-19. maí 2019 en komst ekki til landsins vegna prófa.

Á forsíðunni má sjá Aldísi með verðlaunin árið 2019 en hér fyrir neðan er Davíð í leik á Íslandsmótinu í mars. Mynd af vef BTÍ.

Aðrar fréttir